Samninganefnd Íslendinga vegna Icesave-deilunnar við Breta og Hollendinga hitti forystumenn ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu á fundi klukkan hálf níu í morgun. Farið var yfir stöðu mála en nefndarmenn komu heim frá London í gær.
Ríkisstjórnarfundur var boðaður klukkan hálf tíu.