Kráin Celtic Cross verður borin út úr húsnæði sem hún hefur haft á 1. hæð og í kjallara að Hverfisgötu 26, samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem kveðinn var upp í dag. Eigandi húsnæðisins, Festar ehf., fór fram á útburðinn.
Festar ehf. eignuðust alla húseignina að Hverfisgötu 26 í september 2007. Húsnæðið var þá í útleigu og yfirtók nýr eigandi leigusamning við Eignasögu sem framleigði húsnæðið tveimur öðrum leigutökum. Ágreiningur var um uppgjör á leigu og var aðalleigusamningi sagt upp.
Leigjendum var boðið að gera nýja leigusamninga við hinn nýja eiganda og þáði annar það. Eigandi kráarinnar, Celtic á Íslandi ehf., taldi sig hins vegar vera bundinn af eldri leigusamningi og kvaðst hafa greitt leigugreiðslur samviskusamlega til viðsemjanda síns.
Dómurinn leit svo á að Festar ehf. hafi rift leigusamningi um eignina með réttum hætti. Því beri að heimila útburðinn. Frávísunarkröfu Celtic á Íslandi ehf. var hafnað. Þá var félaginu gert að greiða Festum ehf. 150.000 kr. í málskostnað.
Dóminn kvað upp Anna M. Karlsdóttir, settur héraðsdómari.