Opna tvær nýjar líkamsræktarstöðvar í haust

Líkamsræktarstöð World Class í Laugum í Reykjavík.
Líkamsræktarstöð World Class í Laugum í Reykjavík. Morgunblaðið/ Árni Sæberg

World Class ætlar að opna tvær nýjar líkamsræktarstöðvar síðar á þessu ári, í Kringlunni þar sem prentsmiðja Morgunblaðsins var til húsa og við Ögurhvarf í Kópavogi þar sem Húsasmiðjan var með verslun.

Björn Leifsson, framkvæmdastjóri World Class, sagðist sannfærður um að þörf væri fyrir þessa þjónustu. Það væri allt fullt í Laugum. Staðsetningin væri mjög góð í Kringlunni og stöðin við Ögurhvarf mundi þjóna 40 þúsund manna byggð. Nýju stöðvarnar verða opnaðar í september.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert