Einar Kr. Guðfinnsson og Guðlaugur Þór Guðlaugsson, þingmenn Sjálfstæðisflokks hafa sent formönnum Sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar og Viðskiptanefndar bréf og óskað eftir sameiginlegum fundi nefndanna þar sem farið verði yfir skuldamál í landbúnaði og þau úrræði sem standi bændum til boða.
Bréf þingmannanna til formanna nefndanna
Atli Gíslason, formaður Sjávarútvegs og landbúnaðarnefndar
Lilja Mósesdóttir, formaður Viðskiptanefndar.
Undirritaðir óska hér með eftir að
haldinn verði sameiginlegur fundur Sjávarútvegs og landbúnaðarnefndar og
Viðskiptanefndar Alþingis þar sem farið verði yfir skuldamál í landbúnaði
og þau úrræði sem bankar og aðrar fjármálastofnanir hafa boðið upp á gagnvart
bændum í ljósi skuldastöðu þeirra.
Það er ljóst að skuldamál
landbúnaðarins hafa all mikla sérstöðu. Rekstur búa og heimila er
samantvinnaður og þarf því að taka á þeim málum með nokkuð öðrum hætti en hjá
einstökum atvinnugreinum eða gagnvart heimilunum í landinu. Þessi mál eru
og þess eðlis að þau snerta verkefnasvið beggja nefnda, Sjávarútvegs og
landbúnaðarnefndar og Viðskiptanefndar og er því farið fram á sameiginlegan
fund nefndanna.
Þess er eindregið farið á leit að
þessi fundur verði haldinn í þessari viku, þar sem árlegt Búnaðarþing hefst nú
á sunnudaginn. Ósk okkar er sú að á fundinn verði boðaðir fulltrúar
Bændasamtakanna og Sjávarútvegs og landbúnaðarráðuneytisins. Að loknum þessum
fundi verði tekin ákvörðun um hvort ástæða sé til að kalla jafnframt fyrir
nefndina fulltrúa fjármálafyrirtækja.
Virðingarfyllst,
Einar K. Guðfinnsson
Guðlaugur Þór Þórðarson.