Ökumaður á fimmtugsaldri var tekinn á 197 km hraða við Gunnarshólma á Suðurlandsvegi kl. 18.04 í gær. Hámarkshraði á þessum vegarkafla er 90 km/klst. Það voru lögreglumenn frá Suðurnesjum sem áttu leið þarna um og gómuðu hraðakstursmanninn. Hann játaði sök.