Komi til viðræðna með opnum huga

Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon. mbl.is/Ernir

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir við Bloomberg fréttastofuna, að Bretar og Hollendingar ættu að koma til viðræðna við Íslendinga um Icesave-málið með opnum huga

Bloomberg hefur eftir Steingrími, að Íslendingar verði að finna lausn, sem er meira viðunandi en tilboðið um breytilega vexti, sem þjóðirnar tvær lögðu fram í lok síðustu viku.

Þá segir Steingrímur að íslensk viðræðunefnd sé reiðubúin til að halda áfram viðræðum, jafnvel þótt Bretar og Hollendingar hafi gefið til kynna, að tilboðið frá því á föstudag væri lokatilboð af þeirra hálfu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert