Ófært er í Ísafjarðardjúpi og er beðið með mokstur. Fært er á milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur og til Súðavíkur og um Gemlufallsheiði til Þingeyrar og til Suðureyrar. Ófært er um Klettsháls, þungfært er í Reykhólasveit. Ófært er frá Guðlaugsvík og norður Strandir. Á sunnanverðum Vestfjörðum eru hálkublettir.
Á Norðurlandi vestra eru hálkublettir, hálka og éljagangur eru á Vatnsskarði og á Þverárfjalli. Snjóþekja er á Öxnadalsheiði. Ófært er á Siglufjarðarvegi frá Ketilsási í Siglufjörð.
Á Norðurlandi eystra er þungfært á milli Raufarhafnar og Þórshafnar. Þæfingur og skafrenningur eru á Tjörnesi, Ljósavatnsskarði og á Mývatnsöræfum. Sjóþekja, snjókoma eða éljagangur er í öllum Eyjafirði eins í Mývatnssveit og um Melrakkasléttu.
Á Austurlandi er snjóþekja og éljagangur á fjallvegum en hálkublettir með ströndinni. Vegir á Suðausturlandi eru víðast auðir. Þó eru hálkublettir frá Kirkjubæjarklaustri að Vík. Á Suðurlandi eru vegir auðir. Á Vesturlandi eru víða hálkublettir.