Því fer fjarri að þingmenn Samfylkingarinnar banni þingmönnum Vinstri grænna að tjá sig um Evrópusambandið segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Morgunblaðið sagði í morgun frá sameiginlegum þingflokksfundi Samfylkingar og Vg þar sem þessi mál voru rædd. Björgvin G. Sigurðsson segir þingmenn Samfylkingar ekki segja þingmönnum Vg fyrir verkum. Við ræðum við Steingrím og Björgvin í fréttatímanum.