Setja þarf svínaræktinni í landinu metnaðarfull markmið í umhverfismálum, að mati starfshóps um eflingu svínaræktar. Svínaskít skal nota til áburðar í jarðrækt eða á annan sambærilegan hátt.
Starfshópurinn varar við þeirri þróun að þjappa framleiðslu svínakjöts svo mikið saman að hún fari að stærstum hluta fram á fáum stöðum, meðal annars vegna sjúkdómahættu.
Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.