Lögreglan á Selfossi lýsir eftir Guðbjarna Traustasyni fanga. Hann skilaði sér ekki úr reglubundnu helgarleyfi frá fangelsinu að Litla Hrauni í gær og eftirgrenslan eftir honum hefur ekki skilað árangri.
Guðbjarni er fæddur 31. desember 1982. Hann er um það bil 185 sm á hæð og um 70 kg. Hann er ekki talinn hættulegur. Talið er að Guðbjarni dvelji á Reykjavíkursvæðinu.
Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir hans eða dvalarstað eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Selfossi í síma 480 1010