Íslenska Icesave-samninganefndin er enn í London. „Þeir eru ekki á leiðinni heim, ekki að svo stöddu alla vega,“ sagði Elías Jón Guðjónsson, upplýsingafulltrúi fjármálaráðuneytisins.
Hann kvaðst litlar upplýsingar geta gefið umfram það sem fram hefur komið um helgina. Samningamennirnir hafa skipst á skoðunum og upplýsingum við samninganefnd Breta eftir óformlegum leiðum.
Engir formlegir samningafundir hafa verið haldnir að þessu sinni og slíkir fundir hafa ekki verið ákveðnir, að því best er vitað.