Melrakkasetur Íslands og Vaxtarsamningur Vestfjarða hafa undirritað styrktarsamning vegna samstarfs í vöruþróun á náttúrulífstengdri ferðaþjónustu í kringum villt dýralíf á Vestfjörðum að því er fram kemur á fréttavef Bæjarins besta. Styrkurinn er veittur til klasaverkefnis „Villt dýr að féþúfu“ sem er samstarfsverkefni milli Melrakkaseturs Íslands, Náttúrustofu Vestfjarða, Rannsókna- og fræðaseturs HÍ á Vestfjörðum, Vesturferða og Borea Adventures.
Í tilkynningu Melrakkaseturs Íslands segir að á Vestfjörðum séu „óvenju fjölbreyttir möguleikar fyrir
náttúrulífstengda ferðaþjónustu og mikill mannauður, þekking og reynsla
sem mun nýtast vel í áframhaldandi uppbyggingu hennar.“ Refurinn hafi t.a.m.
ekki verið tekjulind fyrir þjóðina í næstum hundrað ár, heldur kostað
sveitafélög milljónir á ári í langan tíma. „Hugmyndin er að snúa þeirri
stefnu við og gera Vestfirðingum kleift að hafa tekjur af tófunni á
sjálfbæran hátt enda má kalla refinn einkennisdýr Vestfjarða.“
Í tilkynningunni segir
ennfremur að ferðaþjónustuaðilar á Vestfjörðum komi flestir að
einhverskonar dýralífstengdum málum. „Ekkert annað landsvæði af sömu
stærðargráðu hefur jafn auðveldan aðgang að eins mörgum áhugaverðum
dýrahópum. Það er því mikilvægt fyrir alla hagsmunaaðila að vekja
athygli á þeirri sérstöðu og nýta sér þá þekkingu sem hér er.“
Í
tilkynningu Melrakkaseturs kemur einnig fram að samstarfsaðilar á
Vestfjörðum og landsvísu, taka þátt í norðurslóðaverkefni um þróun
náttúrulífsferðamennsku á norðurslóðum, The Wild North, en það er
samnorrænt verkefni. Félagar The Wild North framkvæma grunnrannsóknir
og halda námskeið og vinnufundi, sem eru sérstaklega miðuð að þörfum
ferðaþjónustufyrirtækja og annarra hagsmunaaðila náttúrulífstengdrar
ferðaþjónustu. Þróað verður vottunarkerfi sem nýtist ferðaþjónum í
markaðssetningu ferða sinna.
„Þátttaka í The Wild North er mikilvæg fyrir uppbyggingu náttúrulífsferðaþjónustu í fjórðunginum og gerir okkur hæfari til að þróa okkar vöru og þjóna viðskiptavinum okkar. Miklar væntingar eru gerðar til náttúrulífsferðamennsku í dag. Þátttakendur í verkefninu hafa trú á því að aukin verðmætasköpun sé fólgin í því að ná til þeirra fjölmörgu ferðamanna sem skipuleggja ferðir sínar gagngert til að sjá villt dýr og óspillta náttúru.
Þetta
er sá efniviður sem flestir hagsmunaaðilar á Vestfjörðum hafa upp á að
bjóða til ferðamanna og telst helsta aðdráttarafl svæðisins. Sé rétt að
málum staðið og ef fyrir liggur trygg vottun fyrir því að
þjónustuaðilar hér stundi ábyrga og sjálfbæra ferðamennsku opnast
aðgangur að þessum verðmæta hópi ferðamanna sem hefur lítið skilað sér
hingað til þessa. Með því að stuðla að sjálfbærri þróun
náttúrulífstengdrar ferðaþjónustu á Vestfjörðum má tryggja undirstöður
greinarinnar, afkomu þeirra sem í henni vinna og varðveislu
náttúruauðlinda til lengri tíma. Styrkurinn mun koma sér mjög vel því
nóg eru verkefnin,“ segir á melrakki.is.
Áætlað er að verkefnið taki þrjú ár og er þegar byrjað að gera áætlanir fyrir næsta sumar.