Frost fór niður fyrir 23 stig í nótt og morgun á svæði frá Mývatni til Egilsstaða. Skil eru að fara yfir landið og við það hlýnar aftur samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni.
Mikill munur var á mesta hita og mesta kulda á landinu í morgun. Samkvæmt vef Veðurstofunnar var 23,4 stiga frost við Mývatn og á Jökuldal en 6,1 stiga hiti á Hvammi undir Eyjafjöllum og 5,6 stiga hiti í Surtsey.