Lítið eftirlit er með því hvort hita- og loftræstikerfi virka eða eðlilega sé staðið að hönnun og uppsetningu þeirra.
Þetta kemur fram í úttekt Lagnafélags Íslands. Félagið skoðaði 35 byggingar og fengu loftræstikerfin einkunn á bilinu 0 til 10. Meðaleinkunn kerfanna var 5.
Í meirihluta húsanna lágu ekki fyrir staðfestar teikningar af loftræstikerfunum og lokaúttekt hafði aðeins verið gerð á 4 kerfum.
Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.