„Ég er ekki í samninganefndinni þannig að ég tek ekki þessi orð fjármálaráðherra til mín“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Þetta sagði hann um þau orð Steingríms J. Sigfússonar að erfitt sé að semja meðan sumir í samningaliðinu hafi ekki áhuga á að ná samningum.