Mjög hefur dregið úr jarðskjálftahrinunni í Eyjafjallajökli síðustu tvo sólarhringa. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni mældust um þrjú hundruð skjálftar í nótt en allt litlar skjálftar. Líklegt þykir að óvissustigi almannavarna verði aflétt í dag.
Að sögn Sigurlaugar Hjaltadóttur, jarðskjálftafræðings á Veðurstofu Íslands, er ekki hægt að segja til um það á þessari stundu hvort jarðskjálftahrinan nú sé yfirstaðin þar sem hún getur hafist á nýjan leik.
Eftir síðasta sumar kom fjögurra mánaða langur rólegur kafli en síðan tóku hræringarnar sig upp aftur þannig að það getur verið allur gangur á hvað gerist næst. Sigurlaug segir að virknin sé enn mikil og mun meiri en hún var í byrjun janúar.
Í gær tilkynntu Almannavarnir um að Almannavarnadeildin fylgist náið með framvindunni í samvinnu við jarðvísindamenn. Um leið og talið er að hætta sé liðin hjá verður óvissustigi almannavarna aflétt í samráði við lögreglustjóra umdæmisins og vísindamenn.