Níu líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina. Fimm þeirra áttu sér stað í miðborginni aðfaranætur laugardags og sunnudags og voru þær flestar minniháttar.
Hinar fjórar líkamsárásirnar áttu
sér allar stað í Hafnarfirði. Að sögn lögreglu teljast þrjár þeirra líka minniháttar en í þeirri fjórðu
voru sjáanlegir áverkar á þolandanum. Sá var bitinn í eyrað þegar hann ætlaði
að stöðva slagsmál tveggja manna. Sá sem beitti þessu óþverrabragði var
handtekinn en hinn sami gat litlar eða engar skýringar gefið á þessu framferði.