Stækkunarstjóri Evrópusambandsins hvatti í gær Hollendinga og Breta til að „leyfa“ Íslendingum að hefja inngönguviðræður við ESB, að því er greint er frá á vef Business Week. Löndin þrjú eigi að líta á Icesave-deiluna sem tvíhliða deilumál sem ekki tengist inngöngu Íslands í ESB.
„Ég vona að samningaviðræður við Íslendinga hefjist fljótlega,“ sagði stækkunarstjórinn Stefan Füle á fundi í utanríkismálanefnd Evrópuþingsins í gærkvöldi. Þó fengi Ísland enga flýtimeðferð.