Elín Flygenring, sendiherra, afhenti í gær Valdis Zatlers, forseta Lettlands, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Lettlandi með aðsetur í Helsinki. Athöfnin fór fram í forsetahöllinni í Riga. Áður hafði sendiherra átt fundi með háttsettum embættismönnum í Riga sem og forseta þings Lettlands, Saeima, Gundars Daudze.
Í frétt á vef utanríkisráðuneytisins segir að Lettar telji Íslendinga til sinna nánustu vinaþjóða og vísi í viðurkenningu Íslendinga á nýfengnu sjálfstæði Lettlands árið 1991 og að Íslendingar hafi fyrst þjóða tekið upp stjórnmálasamband við Lettland á þeim tíma.
Lettland og Ísland hafa náið stjórnmálalegt samband og til skamms tíma hösluðu íslensk fyrirtæki sér völl í Lettlandi, en fæst þeirra starfa þar lengur. Menningarleg samskipti þjóðanna hafa verið að aukast síðustu ár og er áhugi fyrir íslenskri menningu mikill í Lettlandi.