Risakálfur undir Eyjafjöllum

Yfirleitt er fæðingarþungi kálfa um 30-35 kg
Yfirleitt er fæðingarþungi kálfa um 30-35 kg Rax / Ragnar Axelsson

Risakálfur fæddist á Ytri-Skógum undir Eyjafjöllum í gær, samkvæmt frétt Búnaðarsambands Suðurlands. Kálfurinn vó 77 kg og var að sjálfsögðu tekinn með keisara enda varla á færi nokkurra kúa að bera svona stóran kálf.

Lars Hansen, dýralæknir, aðstoðaði kálfinn, sem er kvíga, í heiminn. Kvígan lifði burðinn af og heilsast vel. Móðirin er Húfa 350 Trefilsdóttir 96006, móðir Húfs 07049, en hún var komin 35 daga fram yfir tal. Faðir kálfsins er Flói 02029.
Til samanburðar má geta þess að fæðingarþungi íslenskra kálfa er yfirleitt á bilinu 30-35 kg.
Það er fátítt að kálfar fæðist svo stórir en þó er fæddist 67 kg kálfur í Gaulverjabæ í Flóa þann 1. febrúar 2006.

Hér er hægt að lesa nánar um kálfinn

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert