Nóatúnsverslanirnar við Hringbraut, í Austurveri og Grafarholti loka ekki á hefðbundnum tíma í kvöld, því frá og með deginum í dag verða þessar þrjár verslanir opnar allan sólarhringinn.
„Okkur hefur borist töluvert af óskum frá viðskiptavinum um aukið aðgengi að okkar verslunum og með þessu viljum við bregðast við þeim beiðnum,“ segir Bjarni Friðrik Jóhannesson, rekstrarstjóri Nóatúns. Verslanirnar þrjár sem opnar verða voru valdar með það í huga að þær gætu þjónað svæðinu frá Seltjarnarnesi og upp í Mosfellsbæ.
Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.