Tjaldur hvíldi lúin bein í Sundahöfn í dag. Ólíklegt er þó að hann hafi komið sjóleiðina til landsins. Undanfarna daga hafa tjaldar sést á ýmsum stöðum. Nokkrir tjaldar hafa hér vetursetu en flestir skreppa til útlanda yfir háveturinn og koma svo aftur hingað um þetta leyti til að eyða hér sumrinu.