Fjórðungur ók of hratt

mbl.is/Júlíus

Fjórðungur ökumanna. sem fór um götuna Hlíðarberg í Hafnarfirði í gær, gegnt Setbergsskóla, ók of hratt samkvæmt mælingum lögreglunnar. Brot 22 ökumanna voru mynduð, af 86 ökutækjum sem óku Hlíðarbergið í vesturátt á einni klukkustund.

Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu, segir í tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Í Hlíðarbergi var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Lögreglan segir reynsluna hafa sýnt að notkun slíks búnaðar gefi gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra sé þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað í Hlíðarbergi en þá óku hlutfallslega fleiri, eða 45%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður, 2008, var niðurstaðan 30%.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert