Dýralæknafélag Íslands hvetur Bændasamtök Íslands, Landssamtök sauðfjárbænda, Landssamband kúabænda og búnaðarsambönd um land allt til að beita sér gegn því að leikmenn geldi hrúta og kálfa með svokölluðum hrúta- eða kálfatöngum.
Í bréfinu segir að um sé að ræða sársaukafulla aðgerð sem krefst deyfingar og slíkar aðgerðir séu eingöngu á færi dýralækna, sbr. ákvæði laga um dýravernd og laga um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr.
„Vinsamlega hafið frumkvæði að umræðu og fræðslu um málefnið meðal sauðfjár- og kúabænda þannig að koma megi í veg fyrir brot á lögum um dýravernd hvað þetta varðar og þar af leiðandi álitshnekki sauðfjár- og kúabænda varðandi velferð dýra,“ segir í bréfi Dýralæknafélagsins.