Þrettán sjúkraflug voru farin frá Norður- og Austurlandi til Reykjavíkur í síðustu viku að því er kemur fram á heimasíðu Slökkviliðs Akureyrar.
Fram kemur að fyrsta beiðnin hafi borist á mánudagsmorgun frá Akureyri og meðan á því flugi stóð var óskað eftir forgangsflugi frá Egilsstöðum til Reykjavíkur. Skömmu síðar kom beiðni um annað forgangsflug frá Norðfirði til Reykjavíkur. Í öllum tilfellunum var um alvarleg hjartatilfelli að ræða.