Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu vegna greinar sem birtist á vef Landssambands íslenskra útvegsmanna á föstudag. Er greinin hluti af ritröð LÍÚ um veiðar á skötusel. „Þessi grein á það sammerkt með annarri umfjöllun samtakanna, að reynt er að gera ótrúverðugt heimildarákvæði um veiðar á skötusel, sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra mun veita, verði frumvarp til laga um stjórn fiskveiða samþykkt á Alþingi," segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.