Það voru ansi skemmtilegar myndir sem starfsmenn hvalaskoðunarfyrirtækisins Eldingar náðu í einni af ferðum helgarinnar. Hnúfubakar og hundruð höfrunga léku listir sínar og gerðu þessa ferð að ógleymanlegu ævintýri fyrir ferðamennina.
Ekki spillti fyrir að það sást til hrefnu sem bendir til þess að sumarið sé í nánd.
Hvalaskoðun einskorðast ekki bara við sumartímann eins og áður því Eldingin er nú einnig gerð út á veturna.