Bauð 50% af kostnaðaráætlun

Tilboðin voru opnuð hjá Landsvirkjun.
Tilboðin voru opnuð hjá Landsvirkjun. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Tuttugu tilboð bárust í jarðvinnu vegna uppsetningu vinnubúða við Búðarhálsvirkjun. Lægsta tilboð barst frá Snilldarverki ehf. og Hnullungi ehf. en það var um 50% af kostnaðaráætlun.

Tilboðið frá Snilldarverki ehf. og Hnullungi ehf. hljóðaði upp á 30.639.217, en kostnaðaráætlun Landsvirkjunar var hins vegar 58.248.190. Hæsta tilboðið hljóðaði upp á tæplega 82 milljónir.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert