Íslandsmót iðn- og verkgreina hófst í Vetrargarðinum í dag og heldur áfram á morgun, en þar etja kappi 150 manns, allt ungt fólk sem ýmist eru nemar eða nýútskrifaðir sveinar í sínu fagi. Keppt er í yfir 20 faggreinum auk þess sem fleiri greinar eru með sýningar á aðferðum og tækni.
Að sögn talsmanna Skills Iceland, sem er samstarfsverkefni atvinnulífs og skóla, er Íslandsmót iðn- og starfsgreina 2010 einstakur viðbruður því keppnin í ár er sú stærsta sem haldin hefur verið á Íslandi. Sjaldan hefur gefist jafn gott tækifæri til að kynnast jafn mörgum starfsgreinum á sama tíma, en markmið keppninnar er einmitt fyrst og fremst að vekja athygli almennings og þá sérstaklega ungs fólks á þeim tækifærum sem felast í námi og störfum í iðngreinum.
Auk þess er mótið gott tækifæri fyrir ungt fólk til að sýna fram á færni sína og kunnáttu í iðn- og verkgreinum, að því er segir í lýsingu Skills Iceland. „Þau takast á við krefjandi og raunveruleg verkefni í samkeppni sem reynir á hæfni þeirra, skipulagshæfileika og fagmennsku.“
Töluverður mannfjöldi fylgdist með mótinu í dag þar sem m.a. var keppt í skrúðgarðyrkju, bifvélavirkjun, nuddi, kjólasaumi, kjötiðn og pípulagningum. Keppnin heldur svo áfram á morgun frá kl. 15:30 til 18:00.