Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Hreyfingarinnar, segir athyglisvert hve hátt hlutfall aðspurðra í skoðanakönnun Fréttablaðsins um fylgi stjórnmálaflokka taki ekki afstöðu eða um 40%. Segir hún að þetta geti verið vísbending um að 40% kjósenda ætli að sitja heima.
Að sögn Birgittu gerir fólk oft ekki greinarmun á Borgarahreyfingunni og Hreyfingunni en samkvæmt könnun Fréttablaðsins nýtur Borgarahreyfingin stuðnings 2,1% kjósenda en Hreyfingin 0,6%. Alls eru þetta 2,7% atkvæða sem nægir ekki til þess að ná manni kjörnum á þing.
Hún segist finna fyrir mun meiri stuðningi en þetta þegar hún ræði við kjósendur.
Samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins nýtur ríkisstjórnin stuðnings 38,9% kjósenda. Segir Birgitta að þrátt fyrir mörg mistök ríkisstjórnarinnar þá skipti ekki máli hverjir sitji í ríkisstjórn á svona tímum. Það sé alltaf til óvinsælda. Það væri kraftaverki líkast ef einhver stjórn myndi komast í gegnum fjögurra ára kjörtímabil. „Ég held að það yrði einsdæmi í heiminum á svona krepputímum enda óvinsælar ákvarðanir sem þarf að taka," segir Birgitta.