Landsþing Frjálslynda flokksins hófst í dag með ræðu Guðjóns A. Kristjánssonar formanns flokksins. Yfir hundrað manns hafa skráð sig á fundinn.
Á morgun verður ný forysta flokksins kosin. Guðjón Arnar ætlar ekki að bjóða sig fram að nýju. Sigurjón Þórðarson, fyrrverandi alþingismaður, hefur hins vegar boðið sig fram og er einni í kjöri að því er best er vitað.