Bendir á sóknarfæri Íslendinga

Bjarni Benediktsson ávarpaði fundinn í dag.
Bjarni Benediktsson ávarpaði fundinn í dag.


 
Formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benediktsson, hélt opnunarávarp á fundi sem rúmlega eitthundrað flokksmenn norska Fremskrittspartiet hélt í Reykjavík í morgun.  Hann flutti ávarp um framtíð Íslands og þau sóknarfæri sem felast í endurreisninni.

Bjarni benti á að Ísland ætti betri möguleika á því að vinna sig úr kreppunni en önnur lönd.  Hann sagði að menntunarstig þjóðarinnar væri hátt og sjálfsbjargarviðleitnin væri mikil.  Hann sagði að atvinnumál væri stærsta velferðarmál Íslendinga og að tækifærin til atvinnuuppbyggingar væru til staðar.  Hann lagði áherslu á verðmætasköpun og að skapa ný störf væri forgangsverkefni.

Á fundinum þakkaði hann Norðmönnum fyrir að ætla ekki að láta afgreiðslu Icesave-málsins hafa áhrif á lánafyrirgreiðslu til Íslands.  Bjarni átti líka fund með Siv Jensen formanni Fremskrittspartiet í morgun.  Þar ræddu formennirnir saman um atvinnumál.
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert