Auðveldara er fyrir einstakling að greiða af 20 milljóna króna skuld við banka á fjörutíu árum en að greiða nokkurra milljóna skattaskuld vegna afskriftar sem dreifist á þrjú ár.
Það er mat Hagsmunasamtaka heimilanna. „Ég fæ ekki séð að það sé munur á því að fara í gjaldþrot vegna skattaskuldar eða bankaskuldar,“ segir Marinó G. Njálsson, ritari samtakanna. Drögum ríkisstjórnarinnar að skattlagningu afskrifta er misjafnlega tekið.
Sjá nánari umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.