Sveinn efstur á Akranesi

Sveinn Kristinsson.
Sveinn Kristinsson. mbl.is

Sveinn Kristinsson hafnaði í 1. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar á Akranesi. Í öðru sæti lenti Hrönn Ríkharðsdóttir og í því þriðja Ingibjörg Valdimarsdóttir. Prófkjörið var aðeins fyrir efstu þrjú sætin og var kjörsóknin 46%. Um sæti 4-9 var kosið um á kjörfundi.

Alls 272 atkvæði voru greidd í prófkjörinu. Sveinn var með 148 atkvæði í 1. sæti, Hrönn með 140 atkvæði í 1.-2. sæti og Ingibjörg með 203 atkvæði í 1.-3. sæti.

í 4.-9. sæti lentu Einar Benediktsson, Gunnhildur Björnsdóttir, Magnús Freyr Ólafsson, Hrund Snorradóttir, Guðmundur Valsson og Sigrún Ríkharðsdóttir. Um þau sæti kusu tæplega 60 manns á kjörfundi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert