Þrjár fjöldahjálparstöðvar Rauða krossins hafa verið opnaðar á Hellu, Hvolsvelli og í Vík. Sjálfboðaliðar Rauða krossins taka á móti fólki. Hjálparsími Rauða krossins 1717 hefur verið virkjaður og tekur á móti símtölum frá aðstandendum öðrum sem vilja fá upplýsingar vegna gossins.