Aukinn órói er í eldgosinu á Fimmvörðuhálsi en að sögn Þórunnar Skaptadóttur, jarðfræðings á Veðurstofu Íslands, virðist hann ganga í bylgjum. Engin aukning hefur orðið á jarðskjálftum undir Eyjafjallajökli og er virkni þeirra lítil. Svo virðist sem Krossá sé að vaxa en ekki er hægt að sjá á mælum Veðurstofunnar að gossvæðið sé að stækka.
Talsverð aukning varð í gosinu um sjöleytið í morgun og svipað var upp á teningnum um miðnætti í nótt.
Almannavarnir funda nú á Hellu og síðan verður flogið yfir gosstöðvarnar eftir hádegi í dag.