Ríkisstjórnin hefur samþykkt að leggja fyrir Alþingi frumvarp til laga um bann við verkfalli Flugvirkjafélags Íslands, og jafnframt tilkynnt að frumvarpið verði lagt fyrir Alþingi strax í dag.
Í framhaldi af því hefur Icelandair ákveðið að stefna að því að hefja flug síðdegis í dag um klukkan 16, þó endanlegar ákvarðanir um það verði ekki teknar fyrr en Alþingi hefur lokið meðferð sinni, að því er segir í tilkynningu frá Icelandair.
Um tvö þúsund farþegar bíða nú eftir flugi og Icelandair leggur áherslu á að hefja starfsemi eins fljótt og unnt er.
Farþegar eru hvattir til þess að mæta til flugs tveimur klukkustundum fyrir áætlaðan brottfarartíma.