Samtök atvinnulífsins líta svo á að stjórnvöld hafi rofið stöðugleikasáttmálann með samþykkt skötuselsfrumvarpsins svokallaða. „Ríkisstjórnin er að vísa okkur úr stöðugleikasáttmálanum með samþykkt þessara laga," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Alþingi samþykkti í dag lagafrumvarp um breytingu á stjórn fiskveiða, en í því er bráðabirgðaákvæði sem heimilar sjávarútvegsráðherra að auka skötuselskvóta um 2000 lestir á næstu tveimur fiskveiðiárum og úthluta útgerðum viðbótarkvótanum gegn gjaldi.
Aðspurður hvaða þýðingu það hafi að stöðugleikasáttmálinn hafi verið rofinn
segir Vilhjálmur það hafa áhrif á öll samskipti samtakanna við stjórnvöld. Meðal
annars muni það birtast þegar næsta lota kjarasamninga hefst, en í lok nóvember
eru ýmsir kjarasamningar á almennum vinnumarkaði lausir.
Nánar er fjallað um þetta í Morgunblaðinu í fyrramálið