Skoðun ehf. í Hafnarfirði átti lægsta tilboðið í rofvörn í farvegi Jökulsár á Breiðamerkursandi. Tilboðið nam 50,6% af áætluðum verktakakostnaði. Tilboðin voru opnuð hjá Vegagerðinni í gær.
Alls bárust 17 tilboð í verkið. Ekkert þeirra fór yfir verktakakostnaðinn sem var áætlaður tæpar 42 milljónir króna. Næstlægsta tilboðið kom frá Myllunni ehf., Egilsstöðum og var það ríflega 57 prósent af verktakakostnaði.
Verkinu á að vera að fullu lokið þann 15. júní næstkomandi.
Yfirlit yfir verkið og bjóðendur