Nú um hádegisbilið heyrðist og sást til heiðlóu við Sílavík á Höfn, að því er fram kemur á vefnum Fuglar. Síðan 1998 hafa fyrstu lóurnar sést á tímabilinu 20.-31. mars.
Farfuglarnir streyma nú hver af öðrum til landsins enda fátt sem minnirá vetur sunnan heiða.