Meirihluti Sjálfstæðisflokksins í Ölfusi er fallinn. Ólafi Áka Ragnarssyni, bæjarstjóra, hefur verið sagt upp störfum að sögn fréttastofu Ríkisútvarpsins. Tveir bæjarfulltrúar Sjálfstæðismanna gengu til liðs við minnihlutann og mynduðu nýjan meirihluta.