Strætó bs. hefur ákveðið að ganga til samninga við Hagvagna og Kynnisferðir um akstur strætisvagna en fyrirtækin buðu lægst í aksturinn. Útboðið er til fjögurra ára og hefst akstur í lok ágúst 2010. Alls er um að ræða akstur 35 strætisvagna og 119 þúsund aksturstíma á ári hverju. Andvirði samningsins er 987 milljónir kr. á ári eða tæpir fjórir milljarðar.
Verðtilboð í akstur strætisvagna fyrir Strætó bs. voru opnuð 10. mars sl. Alls bárust tilboð frá sjö fyrirtækjum og ákvað stjórn Strætó bs. á fundi sínum þann 17. mars sl. að ganga til samninga við tvo lægstbjóðendur; Hagvagna og Kynnisferðir, samkvæmt tilkynningu.