Færð er tekin að þyngjast á heiðum Austurlands. Nú er norðanátt og gengur á með hríðarbyljum. Lögreglan á Egilsstöðum beinir því til ökumanna að kynna sér aðstæður áður en þeir leggja á fjallvegi. Þetta á m.a. við um Fjarðarheiði, þar sem vegarþjónusta er hætt í kvöld, Fagradal og fleiri fjallvegi.