Snögg viðbrögð Selfyssing forðuðu frá eldsvoða í bílskúrnum hans í dag. Eldur kviknaði í hjólbörum úr plasti í bílskúr mannsins. Honum tókst að slökkva eldinn með slökkvitæki. Eldurinn er rakinn til þess að logandi sígarettustubbi hafði verið kastað í hjólbörurnar. Einhverjar reykskemmdir urðu í bílskúrnum.