Útihús brunnu og hænur drápust

Útihús brunnu til kaldra kola þannig að um tvö hundruð landnámshænur drápust í miklum bruna á bænum Tjörn á Vatnsnesi í nótt, sem er mitt á milli Hvammstanga og Blönduóss. Einn ábúandi er á bænum, sem að sögn lögreglunnar á Blönduósi vaknaði við snark í eldinum, kom sér út úr húsinu og gerði slökkviliði viðvart.

Íbúðarhúsið skemmdist ekki af eldinum, en hlaða og fjós brunnu alveg. Auk þess skemmdist tengibygging á milli útihúsanna og íbúðarhússins.

Slökkviliðið er enn á vettvangi við að slökkva glæður, og hefur verið að störfum í um fjórar klukkustundir. Tilkynning um eldinn barst lögreglunni á Blönduósi rétt eftir klukkan fjögur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert