Á fundi ráðherra með fulltrúum launþegasamtaka og sveitarfélaga í dag var samþykkt að hvetja Samtök atvinnulífisins til þátttöku í áframhaldandi vinnu á grundvelli stöðugleikasáttmálans.
Fundinn sátu forsætisráðherra, fjármálaráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og fulltúar Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna, Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, Kennarasambands Íslands, Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Bændasamtaka Íslands.
Fram kemur á heimasíðu forsætisráðuneytisins, að farið hafi verið yfir stöðu verkefna sem kveðið sé á um í stöðugleikasáttmálanum.
Staða mála samkvæmt stöðugleikasáttmála