Litlar breytingar hafa orðið á skjálftavirkni á Fimmvörðuhálsi frá því í gær, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Þegar litið er til lengri tíma má segja að það sem skilgreint er sem gosórói hafi minnkað nokkuð, líkt og jarðskjálftavirkni einnig. Tugir skjálfta mældust á svæðinu frá því í gær.