Töluverð umferð lá út úr bænum í norðurátt í gær og var að sögn lögreglunnar í Borgarnesi sitthvað um hraðakstur í umdæminu. Alls voru 7 ökumenn stöðvaðir fyrir of hraðan akstur fram til miðnættis og var hraðast ekið á 117 kílómetra hraða.
Búast má við töluverðri umferð í dag einni þar
sem páskafrí eru nú hafin og full ástæða til að sýna aðgát og þolinmæði í
umferðinni.