Formlegur fundur deiluaðila vegna nýja vaktaplansins á Landspítalans hófst um kl. 16 í dag. Fundinn sitja fulltrúar stjórnar Félags almennra lækna, stjórnenda spítalans sem og Þorbjörn Jónsson, formaður læknaráðs Landspítalans sem er sáttasemjari í deilunni. Að sögn deiluaðila eru menn orðnir bjartsýnni á að sátt geti fundist í deilunni í dag.