Tökum náð á sinueldi í Setbergi

Slökkviliðsmenn hafa náð tökum á töluverðum sinueld sem logaði í Setbergshverfi í Hafnarfirði, vestan við götuna Lækjarberg, í kvöld. Slökkviliðsmenn eru enn á vettvangi og berjast við glæður.

Tilkynning um eldinn barst um kl. 22 og sendi slökkvilið höfuðborgarsvæðisins mannskap á þremur bílum á vettvang. Engin hætta var á að eld breiddist út að íbúðarhúsum en mikinn reyk lagði yfir hverfið.

Nokkurn reyk lagði yfir Setbergshverfið.
Nokkurn reyk lagði yfir Setbergshverfið. Ljósmynd/Þorsteinn Daði Jörundsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert